Klukkan 3:30 um morguninn fórum við aftur á flugvöllinn í Bangkok til að gera aðra tilraun til að komast til Víetnam. Það gekk að mestu vel fyrir sig og eftir smá pappírsvinnu vorum við komin um borð í flugvél á leið til Víetnam. Þegar við vorum komin á flugvöllinn í Hanoi vissum við ekkert hvert við ættum að fara og fórum því inn í litla rútu en vissum í raun ekkert hvert hún var að fara. Loks komumst við í miðbæ Hanoi eftir mjög áhugaverða bílferð, þar sem bílstjórinn píndi bílinn í 3 gír á 15-20 km hraða, þandi bílflautana mjög reglulega, að því er virtist að tilefnislausu og lenti næstum í bílslysi. Hann lét okkur út fyrir utan hótel, þar sem við gistum fyrstu nóttina. Þegar þarna var komið við sögu var klukkan orðin 14
... read more