Ferðin breyttist töluvert frá því sem áætlað var, þar sem langa langa afi Sai lést. Við vorum viðstödd athöfnina sem tók alls rúma 3 daga. Fyrstu þrjá dagana var haldin veisla á heimili hans, þar sem öllum vinum, ættingjum og nágrönnum var boðið. Gestir tóku þátt í öllum undirbúningi, svo sem eldamennsku, uppvaski, skreytingar og öðru sem þurfti að gera. Einnig aðstoðuðu þeir við að greiða fyrir athöfnina. Á hverjum degi voru þrjár máltíðir og þess á milli spjölluðu gestir og hjálpuðu til. Það sem kom mér helst á óvart var að enginn grét eða táraðist í veislunni. Upplifunin mín af athöfninni var eins og um ættarmót eða grillveislu væri að ræða. Ekkert benti til þess að fólk væri sorgmætt, heldur leit frekar út fyrir að það vildi hafa ánægjulega stund með hinum látna, líkt og
... read more