Nú var lagt af stað frá Kat Ba island til Hanoi, þaðan sem ætlunin var að fljúga aftur til Tælands. Ferðalagið var mjög tímafrekt og ævintýraríkt, þar sem við lögðum af stað 12 :30 og komum vorum komin á hótelið í Hanoi kl. 20. Edit: Eftir komuna til Hai Phong tókum við rútu til Hanoi sem tók um tvo tíma. Þegar við komum á rútustöðina biðu leigubílstjórar sem vildu ólmir fá vestrænan ferðamann sem farþega. Við sömdum við einn þeirra um að ekið væri eftir gjaldmæli og lögðum af stað. Gjaldið á mælinum hækkaði það hratt að Sai fór að gruna að átt hefði verið við mælinn, líkt og tíðkast oft í Tælandi. Þegar verðið var komið upp í 350.000 dong áttaði ég mig á að þau 400.000 dong sem ég hafði meðferðis myndu trúlega ekki
... read more