Kyrrahafið Kyrrahafið er ekki neitt kyrrahaf, heldur getur verið mikið veðravíti. Þar eru þó eyjar út um allar trissur, enda hafflöturinn óendanlega stór. Hafið það gott á þessu sandkorni í heimshafinu, fylgist með framvindu ferðarinnar. Kveðja Svkr.
SURFING Hæ,hæ
Alltaf gaman í Ástralíu, mæli með að þið lærið á brimbretti, það er ansi skemmtilegt :) Síðan sé ég alltaf eftir að hafa ekki verið eðaltúristi þegar ég fór til Sidney og klifrað á brúnni eða farið á óperu í óperuhöllinni. Geri það bara næst þegar ég fer ;)
Skemmtið ykkur vel.
Alltaf á leiðinni Gaman að fylgjast með ferðum ykkar. Á Sri Lanka er nú borgarastyrjöld hafin á ný svo það var gott að þið dvölduð ekki lengi þar. Hef skoðað staðina sem þú nefnir á Googlejörð, það er magnað tæki.
Fylgist spenntur með ferðinni. Bið að heilsa
Kveðja ur Hellulandinu Gott að gengur vel og þið búin að skoða margt. Hér heima eru bara umhleypingar í veðri og kosningaskjálfti og Ómar kominn í framboð. Hafið það gott
Rís og karrí Hæ, vonandi verðuru ekki komin með indverskan hreim þegar þú kemur aftur í vinnuna, það væri soldið spúkí.... gott að fá lífsmark á netinu af og til og vita að allt er í lagi, góða skemmtun,
Hrönn, Anna og strákarnir
Á að fara til Hyd? Ef þið eruð á leiðinni til Hyderabad þá á ég góðan vin þar sem væri örugglega til í að aðstoða ykkur eitthvað, eða bjóða ykkur í te. Sendið póst ef þið hafið áhuga. Gangi ykkur vel, gaman að lesa þessa ferðasögu.
jeyy gaman að heyra frá ykkur! hlakka rosa til að fá þig í heimsókn í apríl.
ég nota alltaf flickr.com, en hún getur stundum verið hæg. photobucket er líka ágæt.
bestu kveðjur frá LA.
E
Hæ sæta mín!
Gaman að lesa bloggið þitt og fylgjast þannig með þér. Var að tala við Jónas, hann vill endilega að þið hafið samband ef þið komið til mumbai, síminn hjá honum er: +919920428149.
Hafið það gott og gangi ykkur vel!
Kveðja, frá klakanum
Ferðablogg! Halló, gott að þú lést vita af þessu ferðabloggi, ég hafði ekki hugmynd um að ferðasagan væri á netinu. Gangi ykkur vel og passið ykkur á maóistunum í Nepal. :)
Alltaf gaman að fylgjast með, sé þið hafið ákveðið að fara til Nepals eftir allt saman það verður örugglega líka spennandi og vonandi ekki eins erfitt og Indland.
Kveðja allir á Vitastíg.
Greinilega mikið upplifelsi hjá ykkur þarna úti.... í tilefni þess ætlum við að elda indverskan mat í kvöld og á morgun...mmm...
Einhvernvegin þá get ég ekki ímyndað mér hvernig það er að fá leið á slíkum mat....eða jú kannski þegar að maður fær hann í öll mál;o)
Gangi ykkur endalaust vel.....
Kveðja frá Marbakka Hæ Rósa, gaman að fylgjast með, bara góða ferð áfram.
Þið verðið orðin reynslunni ríkari í maí ef ekki nú þegar.
pabbi og Borghildur
Ég er alltaf að kíkja á síðuna og bíð alltaf spennt eftir að sjá hvort það sé búið að skrifa meira, það er svo gaman að lesa hvað þið eruð að gera. Gangi ykkur vel. Kveðja mamma
bolludagur í morgun Hæ gott að gengur vel og ekki að æsa ykkur yfir smáatriðum trúlega þýðir það ekki neitt á þessum sóðum, Vorum í bollukaffi á Vesturgötunni fínt eins og ævinlega. Erla kom með strákana og Kristinn og Magga kíktu við með gaurana. Gangi vel Kveðja Ragnheiður
Gaman að lesa Vá ... hvað þetta hlýtur að vera æðislegt og frábært að þið eruð svona heppin með bílstjóra. Vonandi fáum við bráður að sjá myndir.
kveðja allir heima á Vitastíg.
Pabbi
non-member comment
Kyrrahafið
Kyrrahafið er ekki neitt kyrrahaf, heldur getur verið mikið veðravíti. Þar eru þó eyjar út um allar trissur, enda hafflöturinn óendanlega stór. Hafið það gott á þessu sandkorni í heimshafinu, fylgist með framvindu ferðarinnar. Kveðja Svkr.