.... er ordatiltaeki sem kemur upp i hugann á manni tegar madur ferdast um goturnar i hinum storbrotnu borgum Arabisku furstadaemanna!
Tvílík undur og stórmerki, ég komst af því hvar mesti fjöldi af glerplötum er samankominn í heiminum, Dubai.
Það var mikill hiti sem tók við mér um miðja nótt í Arabísku furstadæmunum. Leið mín lá til Sarhsja, ég hafði asnast til að panta hótel í íhaldsamasta furstaríkinu. Þar er allt bannað hvort sem það eru reykingar, áfengi eða morð. Fangelsi bíður þín ef þú brýtur lög, jafnvel líflát. Það fyndna er að aðeins ein gata skilur af ríkin og ef þú villist á þessari götu og beygir óvart inn í Sarhsja og vill svo óheppilega til að vera með rauðvínsflösku í bílnum, þá ertu orðinn glæpamaður....
Ég átti erfitt með að labba um götur Sarhsja vegna óhóflegra augnagota fyrir það eitt að vera eina konan á svæðinu og tók snögglega ákvörðun að flytja mig til syndaborgarinnar, Dubai.
Dubai hefur allt fyrir þá sem hafa gaman af því að versla. Eðalbílar, pelsar, demantar og ilmvötn hafa sín eigin hverfi og af nógu er að taka af.
Mér fannst það lítið spennandi en ég átti ekki erfitt að finna mér annarskonar
afþreyingu. Ég skellti mér í eyðmerkursafarí, fór á sandbretti, fjórhjól, camelbak, magadanssýningu og drakk í mig austurlenska menningu. Mikið stuð þar. Einnig fór ég í misskemmtilegar dagsferðir...
Abu Dabi var ágæt en smábærinn Hatta bar aftur á móti af. Leiðin þangað liggur í gegnum eyðimörkina og oft á tíðum kom fólk bara úr miðri eyðimörkinni upp í strætóinn. Einnig átti fólk það til að stíga upp í vagninn frá svo litlum bæjarkjörnum (allir inn í miðri eyðimörk) að ég hugsaði hvort eithvað líf væri þar að finna.
Það var einmitt við svona kjarna þar sem vagnstjórinn hóaði í mig og tilkynnti mér að hér væri Hatta. Ég leit tvísýn á hann með spyrjandi augum og hugsaði með mér ,,er ég að fara út hér?" Jubb það reyndist rétt og ég hóf óþægileg skref í áttina að áfangastað mínum. Ég var komin í sannkallaðann draugabæ og var frekar berskjölduð gegn öllum hættum. Einn og einn bíll keyrði fram hjá mér og ráku farþegar upp stór augu þegar þeir litu á mig. Ætli það hafi verið vegna þess að það hafi verið einhver nýr í bænum eða út af því að það var kona í bænum, eða bara ný kona
í bænum???
Ég verða að viðurkenna að mér leið ekkert allt of vel að vera væflast þarna ein, en á einhvern hátt gleymdist það fljótt og úr reyndis hinn besti dagur.
Eins verð ég að nefna ferðina til Oman sem er nágrannaland Arabísku furstadæmanna. Fjöllin og umhverfið þar eru alveg stórbrotin þó það jafnast ekkert á við Nepal....
Á kvöldin snéri ég þó alltaf til ramma öryggisins, Dubai. Þar eru þó óvenju margir rússar í pakkaferðum og allskonar nýríku fólki sem leit heldur betur stórt upp á sig. Frekar leiðinlegt lið að mínu mati og algjörir höslarar. Þegar ég fer að hugsa út í það þá er Dubai ein mesta hössl borg sem ég hef á ævi minni komið í. Allir sem koma þangað, koma til að græða, ef þeir ætla ekki að græða á borginni þá er það á náunganum. Hössl hér og hössl þar. Ég þurfti oft á tíðum að vera hreinlega dónaleg til að losna við áganginn.
Dubai er þó ekki all slæm, ég eignaðist nokkra ágætis kunningja og var dugleg að hanga í Jumeirah beach park, lokuðum strandgarði þar sem berrassðir túristar fá að svala tan þorsta sínum og fór í skoðunarferð á Palm Island,
skoðaði
Burj Al Arab , eina 7 stjörnu hótelið í heiminum (þar eru sko gullklósett), smellti mér í
Emirates Mall í verslunarferð og á
innanhússkíði. Það að sameina þessa tvo þætti er gróðarlega góð hugmynd. Ég er að hugsa um að reyna fá Markús Örn Atonson með mér í baráttuhóp og berjast fyrir innanhús síðasvæði í Kringlunni. Skráning í baráattuhópinn er hér að neðan og verður stofnfundur 19. desember þegar ég verð stigin á mína heittelskuðu fósurjörð!
2 Comments -
Add Public Comment or
Send Private Message
Hæ elskan mín, veit að ég kommenta ekki oft, en les þig religiously!! Djöfull væri ég til í að vera í Dubai, á meðan þú mundir tjilla á sandbretti gæti ég eytt deginum í að versla og work the tan :P Sit hérna með Hörn uppí odda, erum að reyna að koma okkur í að læra, en endum auðvitað á því að skoða blogg ;P Hafðu það ógeðslega gott skvís og við sjáumst innan tveggja vikna
ju dudda mia..þetta er sko ævintyri..og rosa ertu ordin gronn og brun og hvithærd og sidhærd og allt saman bara..duddapæja! hlakka svo til að sja þig þegar þu kemur og knusa þig fast! og fa allar ferdasögur almennilega:) það er only 7 days or so!
Add Comment
All Comments
2 Comments -
Add Public Comment or
Send Private Message
Hæ elskan mín, veit að ég kommenta ekki oft, en les þig religiously!! Djöfull væri ég til í að vera í Dubai, á meðan þú mundir tjilla á sandbretti gæti ég eytt deginum í að versla og work the tan :P Sit hérna með Hörn uppí odda, erum að reyna að koma okkur í að læra, en endum auðvitað á því að skoða blogg ;P Hafðu það ógeðslega gott skvís og við sjáumst innan tveggja vikna
ju dudda mia..þetta er sko ævintyri..og rosa ertu ordin gronn og brun og hvithærd og sidhærd og allt saman bara..duddapæja! hlakka svo til að sja þig þegar þu kemur og knusa þig fast! og fa allar ferdasögur almennilega:) það er only 7 days or so!
Add Comment
All Comments